Allt íbúðarhúsnæði landsmanna er metið með nýjum og endurbættum aðferðum í fasteignamati ársins 2010 sem tekur gildi um næstu áramót. Fasteignaskrá Íslands mun í næstu viku senda út tilkynningar til fasteignaeigenda um allt land þar sem nýja matið er kynnt. Fasteignamat ársins 2010 miðast við verðlag fasteigna í febrúar 2009 og er frestur til að gera athugasemdir við nýja fasteignamatið til 24. júlí 2009.

Markmið með endurbættum matsaðferðum er að fasteignamatið endurspegli markaðsvirði eigna betur hér eftir en hingað til. Fasteignamat sumra eigna hækkar, mat annarra lækkar en mat enn annarra eigna stendur nánast í stað. Talið var nauðsynlegt að endurbæta matsaðferðirnar til að auka jafnræði fasteignaeigenda gagnvart skattlagningu fasteigna þannig að matið endurspegli á sanngjarnari hátt en áður raunverulegt markaðsverð fasteigna.

Kynning fyrir fjölmiðla

Götur og matssvæði á höfuðborgarsvæðinu

   Skýrsla Almy, Gloudemans, Jacobs & Denne - Unnin fyrir Fasteignaskrá Íslands í mars 2007

Skýrsla um fasteignamat 2010

  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Dökkur bakgrunnur
  • Mínar stillingar
  • Prenta síðu

Leit

Leit
English