Um eyðublöð þjóðskrár

Hægt er að fylla út og skila eyðublöðum merktum með tákninu  rafrænt og þá þarf ekki að undirrita. Athugið að nauðsynlegt er að hlaða skjölunum niður af vefnum (ekki opna í vafra). Fyllið út eyðublaðið og vistið skjalið á tölvunni. Smellið á hnappinn netskil til að skila rafrænt.

Ef eyðublaðinu er ekki skilað rafrænt skal það undirritað og sent í bréfpósti til Þjóðskrár Íslands eða sent með faxi.

Nánari upplýsingar um netskil

Rafræn skjalaskil     


Eyðublöð

 Flutningstilkynning (skilið innan 7 daga frá flutningi)


Leiðbeiningar varðandi flutningstilkynningu

Tilkynnið flutning innan 7 daga. Sjá nánar hér um flutning til útlanda.

Tímabundið aðsetur: Námsmenn sem dveljast í öðru sveitarfélagi vegna skólagöngu geta haldið lögheimili í heimabyggð. Haka skal við tilheyrandi reit á eyðublaðinu. Vottorð frá skóla verður að fylgja.

Sambúð hefst: Útfylla þarf sérstakt eyðublað sem báðir aðilar undirrita.

Sambúðarslit: Ef fólk í skráðri sambúð á börn saman verða sambúðarslit ekki skráð í þjóðskrá fyrr en gögn berast frá viðkomandi sýslumanni varðandi forsjá barna.

Flutningur barna 17 ára og yngri: Tilkynningu þarf að fylgja skriflegt samþykki forsjármanns/manna eða þess aðila sem barnið var síðast skráð hjá. Taka skal fram hverjum barnið skuli tengjast í þjóðskrá: nafn og kennitala.

Flutningur 18 ára og eldri: Sá sem er ekki í hjúskap eða skráðri sambúð þarf sjálfur að tilkynna flutning sinn.
Einstaklingar geta ekki tilkynnt flutning lögráða barna sinna né foreldra.

Annað hjóna flytur: Taka skal fram í athugasemdum ef um fyrirhugaðan skilnað er að ræða. Ef fólk í hjúskap er að taka upp samvistir á ný, t.d. eftir skilnað að borði og sæng, þá tilgreinist það í athugasemdum. Sá maki sem flutt er til þarf að staðfesta samvistirnar á sérstöku eyðublaði:

Fyrirtæki: Tilkynningar vegna flutnings póstfangs/lögheimili fyrirtækja/félaga er að finna á vef Ríkisskattstjóra www.rsk.is eyðublað nr. 17.40

  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Dökkur bakgrunnur
  • Mínar stillingar
  • Prenta síðu

Leit

Leit
English