Afhending vegabréfa breytist
Frá og með 2. maí 2011 breytist afhending vegabréfa hjá Þjóðskrá Íslands. Ekki verður lengur hægt að sækja vegabréf í afgreiðsluna, Borgartúni 21 nema um sé að ræða hraðafgreiðslu. Framvegis verða vegabréf send í pósti til umsækjanda, á þann stað sem hann tiltekur eða á skrifstofu sýslumannsembættis. Ef umsækjandi sækir um hraðafgreiðslu og greiðir fyrir hana getur hann sótt vegabréfið í afgreiðslu Þjóðskrár Íslands eða fengið það sent til sín í pósti.
Afgreiðsla vegabréfa
Aðalafgreiðsla höfuðborgarsvæðisins fyrir umsóknir um vegabréf er hjá sýslumanninum í Kópavogi á Dalvegi 18. Sjá kort frá ja.is.
Sækja má um vegabréf hjá öllum sýslumannsembættum utan Reykjavíkur, óháð búsetu. Umsækjendur vegabréfa þurfa að mæta í eigin persónu á umsóknarstað.
Aðrir umsóknarstaðir innanlands
Umsóknarstaðir erlendis