05.03.2010

Velta á markaði

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu frá 26. febrúar til og með 4. mars 2010 var 51. Þar af voru 33 samningar um eignir í fjölbýli, 9 samningar um sérbýli og 9 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 1.559 milljónir króna og meðalupphæð á samning 30,6 milljónir króna.

Á sama tíma var 5 kaupsamningum þinglýst á Suðurnesjum*. Þar af voru 3 samningar um eignir í fjölbýli og 2 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 110 milljónir króna og meðalupphæð á samning 22,1 milljón króna.

Á sama tíma var 7 kaupsamningum þinglýst á Akureyri. Þar af voru 4 samningar um eignir í fjölbýli, 1 samningur um sérbýli og 2 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 143 milljónir króna og meðalupphæð á samning 20,4 milljónir króna.

Á sama tíma var 2 kaupsamningum þinglýst á Árborgarsvæðinu**. Þar af var 1 samningur um eignir í fjölbýli og 1 samningur um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 27 milljónir króna og meðalupphæð á samning 13,7 milljónir króna.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

Velta á markaði vikuna 26. febrúar til og með 4. mars
Samtals Fjölbýli Sérbýli Aðrar eignir Meðaltal sl.
12 vikna
Höfuðborgarsvæðið
Reykjavík 26 19 4 3 23
Seltjarnarnes 0 0 0 0 0
Mosfellsbær 4 0 2 2 2
Kópavogur 13 9 3 1 8
Hafnarfjörður 8 5 0 3 5
Garðabær 0 0 0 0 4
Álftanes 0 0 0 0 0
Samtals 51 33 9 9 42
Velta (millj. kr.) 1.559 1.522
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 30,6 36,2
Suðurnes 5 3 2 0 4
Velta (millj. kr.) 110 144
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 22,1 39,3
Akureyri 7 4 1 2 5
Velta (millj. kr.) 143 99
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 20,4 21,6
Árborgarsvæðið 2 1 0 1 3
Velta (millj. kr.) 27 48
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 13,7 18,5

* Sveitarfélögin Reykjanesbær, Grindavík, Sandgerði, Garður og Vogar.
** Sveitarfélögin Árborg, Hveragerði og Ölfus.

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Dökkur bakgrunnur
  • Mínar stillingar
  • Prenta síðu

Leit

Leit
English