Leiðbeiningar vegna uppsetningar á skönnum sem tengjast þinglýsingarkerfi Fasteignaskrár
Þessar leiðbeiningar gera ráð fyrir að DotNet útgáfa 1.1 ásamt ServicePack1 fyrir DotNet sé sett upp á vélinni fyrir.
Uppgefnar slóðir að möppum og skrám miðast við að sett sé upp af servernum ykkar á F: drifi. Ef sett er upp af öðru drifi breytast uppgefnar slóðir í samræmi við það.
Reiknað er með að skannar séu af gerðinni Canon DR-2050C og eru slóðir að reklum gefnar upp miðað við það. Aðrar gerðir af skönnum kunna þó að verða notaðar og eru reklar þá í möppu með tilsvarandi nafni.
Uppsetning á skanna
Byrjað er á að tengja skannan við tölvuna (USB snúra) og rafmagn. Þegar kveikt er á skannanum (ath að rofinn er aftan á skannanum) á tölvan að skynja það og ræsa sjálfkrafa “Add New Hardware Wizard”. Fylgja skal leiðbeiningum á skjá, og þegar spurt er um staðsetningu rekla skal vísað á möppuna F:\LandskraFasteigna\Uppsetning\Skanni\ DR2050C_Drivers\INF. Leiðbeiningum á skjá er fylgt áfram og ef upp koma skilaboðin “Digital Signature Not Found” eða “has not passed Windows logo testing” skal svara með “Yes” eða “Continue Anyway” eftir því sem við á.
Uppsetning á ISIS/TWAIN reklum fyrir skanna
Þetta eru þeir reklar sem kerfin nota til að hafa samskipti við skannann og þurfa því að vera uppsettir. Farið er í möppu F:\LandskraFasteigna\Uppsetning\skanni\DR2050C_Drivers\Driver og þar er keyrð skráin setup.exe. Fylgið leiðbeiningum á skjá.
Uppsetning á skönnunarviðmóti
Hér er um að ræða dll sem kerfin nota til að tengjast skjalagrunni Fasteignaskrár. Þetta þarf að setja upp á þeim vélum sem verða tengdar skanna. Farið er í möppu sem merkt er nýjasta útgáfunúmeri, þ.e. fyrir útgáfu 1.0.17 heitir mappan F:\LandskraFasteigna\Uppsetning\skanni\V_1.0.17. Þar er keyrð skráin setup.exe og leiðbeiningum á skjá fylgt.